Orkuvefsjá

ovs_skjamynd1Orkuvefsjá er ætlað að koma í stað Gagnavefsjár sem birtingarstaður upplýsinga um staðtengjanleg gögn af Íslandi sem Orkustofnun ber ábyrgð á. Markmiðið er að yfirfara og uppfæra þau gögn Gagnavefsjár sem birt hafa verið í vefsjánni á ábyrgð Orkustofnunar og flytja þau yfir í annað hugbúnaðarumhverfi til birtingar á netinu. Jafnframt er markmiðið að byggja upp á Orkustofnun ný landræn gagnasöfn á fleiri sviðum en hingað til, en birting upplýsinga sem byggja á þeim er fyrirhuguð í nýrri Orkuvefsjá.

Ástæðurnar fyrir þessari breytingu eru meðal annars þær að núverandi hugbúnaður Gagnavefsjár þarfnast uppfærslu. Á sama tíma hafa tveir upphaflegir samstarfsaðilar af fjórum í Gagnavefsjárverkefninu (Vatnamælingar, sem áður voru hluti Orkustofnunar en nú innan Veðurstofu Íslands og Umhverfisstofnun), dregið sig út úr því, en stofnanirnar viðhalda ekki lengur gögnum sínum í Gagnavefsjá þar sem gögnin birtast nú í hinni nýju Náttúruvefsjá. Eftir standa þau gögn sem stjórnsýsluhluti Orkustofnunar og ÍSOR hafa séð um. Hluti þeirra á einnig að birtast í Náttúruvefsjá og þarf að yfirfæra þau á annað form um leið og þau verða endurskoðuð. Velta má upp þeirri spurningu hvort allt það efni sem birt hefur verið í Gagnavefsjá falli að markmiðum Náttúruvefsjárinnar, en ný gögn sem eru í vinnslu munu fyrst og fremst birtast í Orkuvefsjá.

Búnaður

Orkuvefsjá nýtir hugbúnaðarlausn (Flashmap) sem þróuð var af hugbúnaðarfyrirtækinu Gagarín vegna verkefnis um Náttúruvefsjá, en gerð þess búnaðar var upphaflega styrkt af Rannís og síðan af Verkefnisstjórn um íslenska upplýsingasamfélagið og Orkustofnun. Hugbúnaðarlausnin þróaðist innan samstarfsverkefnis fyrirtækja og stofnana á nokkurra ára tímabili. Í framhaldi af Náttúruvefsjárverkefninu lét Orkustofnun þróa hugbúnaðinn enn frekar og var sú útgáfa hans notuð í Landgrunnsvefsjá. Sú lausn liggur jafnframt til grundvallar í Orkuvefsjá. Við hönnunina hefur verið lögð áhersla á einfalda og notendavæna lausn sem auðveldar bæði innskráningu og miðlun samræmdra upplýsinga um gögn frá ólíkum aðilum. Í vefsjánni eru til staðar eiginleikar eins og þysjun, tilfærsla á skjá, prentun, mælikvarði og staðsetningarhnit, auk þess sem mögulegt er að færa til þekjur í lista (Virk lög) til að draga fram ólík áhersluatriði. Vefsjáin mun gefa kost á að miðla ýmiss konar upplýsingum eins og fróðleik, lýsigögnum og ítarefni, þar sem vísað er til annars efnis með tenglum í efni á vefsíðu Orkustofnunar sem og hjá öðrum aðilum. Í hugbúnaðinum eru möguleikar til að birta upplýsingar á fleiri tungumálum og er ensk útgáfa vefsjárinnar opnuð samhliða þeirri íslensku. Framsetning gagna miðast við notkun viðmiðunar ÍSN93.

Gögn

Orkuvefsjá mun einkum birta vektor gagnasöfn sem eru unnin á Orkustofnun og í samstarfi Orkustofnunar við Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR), auk rastamynda sem aðgengilegar verða gegnum vefþjónustur. Einu utanaðkomandi gögnin í byrjun verða úr SPOT heildargervitunglamynd af Íslandi, en Orkustofnun hefur samið um notkun hennar við Landmælingar Íslands.

Veggspjöld

Vefsjár og gögn Orkustofnunar
Aðgengi að Orkugrunnkortum í Orkuvefsjá
Veggspjöldin verða birt á málþingi um varðveislu landfræðilegra gagna sem haldið verður í Þjóðarbókhlöðunni 23. september 2010 og á ráðstefnunni “Landupplýsingar 2010” sem haldið verður í Veisluturninum, Kópavogi, 23. október 2010.

Tengiliðir og nánari upplýsingar

Gögn og efni: Þorvaldur Bragason, thorvaldur.bragason (hjá) os.is – Hilmar Sigvaldason, hs (hjá) os.is. Hugbúnaður: Gagarín - Geir Borg, geir (hjá) gagarin.is

Fyrirvarar og takmarkanir



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica