Gagnavefsjá

gagnavefsja_skjamyndOrkustofnun (áður Raforkumálaskrifstofan) hefur safnað gögnum um orkulindir landsins í meira en hálfa öld. Árið 1989 hófst skráning slíkra gagna í gagnagrunn stofnunarinnar (Oracle). Gagnavefsjá var opnuð á netinu í mars 2004 og hafði upphaflega það hlutverk að auðvelda aðgang að efni úr grunninum. Aðilar að verkefninu voru orkumálasvið Orkustofnunar, Vatnamælingar sem þá voru hluti stofnunarinnar og Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) sem nýlega höfðu verið skildar frá henni, auk þess sem síðar bættust við gögn frá Umhverfisstofnun. Vatnamælingar, sem nú eru hluti Veðurstofu Íslands og Umhverfisstofnun, uppfæra ekki lengur gögn til birtingar í Gagnavefsjá, heldur nýta stofnanirnar nú eigin hugbúnað og Náttúruvefsjá í þeim tilgangi.

Búnaður

Gagnavefsjá nýtir hugbúnað frá ESRI, en allar þekjur eru sóttar í Oracle gagnagrunn með ArcSDE (Spatial Database Engine) og byggt er á ArcIMS (Internet Map Server). Samstarfsaðili um búnað er Samsýn, umboðsaðili ESRI á Íslandi.

Gögn

Í Gagnavefsjá er veittur aðgangur að gögnum um orkulindir, orkubúskap, orkunotkun og aðrar rannsóknir um náttúrufar landsins sem aflað hefur verið fyrir almannafé. Einnig er veittur aðgangur að gögnum sem stofnanirnar hafa aflað fyrir verkkaupa en í þeim tilfellum hefur verið gefið samþykki til birtingar. Meðal efnis eru upplýsingar um vatnasvið, vatnshæðarmælakerfi, rennslismælistaði og annað tengt fall- og stöðuvötnum. Upplýsingar eru gefnar um jarðhitasvæði, borholur, sýnatökustaði og efnagreiningar og þar má einnig finna gögn tengd orkuvinnslu. Þá eru birtar þekjur yfir friðlýst svæði og náttúruminjaskrá, auk hæðarlína og vatnafars frá Landmælingum Íslands.

Framtíðarsýn

Gagnavefsjá byggir á hugbúnaði sem ekki er lengur uppfærður af framleiðanda. Orkustofnun hefur greitt kostnað við rekstur vefsjárinnar og þar sem gögn annarra eru ekki lengur uppfærð vegna birtingar þar, mun stofnunin með tímanum færa birtingu upplýsinga um þau gögn sem eru á ábyrgðarsviði hennar í nýja Orkuvefsjá. Til að gefa hugmynd um það efni sem flytjast mun í aðrar vefsjár þegar Gagnavefsjáin verður lögð af, er hér fyrir neðan listi yfir það fagefni sem var birt í vefsjánni árið 2006. Þetta efni mun væntanlega verða aðgengilegt á næstunni í öðrum vefsjám allt eftir stefnu stofnananna og ábyrgðarsviði, en einnig hefur áhrif að nákvæmari undirliggjandi gögn í vefsjám leiða til þess að fara verður vel yfir öll eldri staðsetningarhnit til dæmis vegna birtingar ofan á myndgrunnum.

Efnisflokkar:

Vatnafar: Vatnshæðarmælar, rennslismælistaðir, aflagðir vatnshæðarmælar, veðurstöðvar Vatnamælinga, flóðagreindir vatnshæðarmælar, vatnasvið, dýptarkort, ár, vötn og jöklar (Veðurstofan).

Jarðfræði: Virkar og útkulnaðar megineldstöðvar og öskjurimar, nútímahraun, gosbelti og aldur jarðlaga (ÍSOR).

Jarðhiti: Borholur, hverir og laugar, viðnámsmælingar, jarðhitasvæði , háhiti – yfirborðsummerki, rannsóknasvæði háhita og jarðhitakort (Orkustofnun og ÍSOR)

Orkunýting: Sundlaugar, hitaveitur, vatnsveitur, virkjanir, varaafl, heimarafstöðvar og lón í rekstri (Orkustofnun).

Vatnsorkukostir: Stöðvarhús, stíflur, göng, skurðir, lón, vindatlas og mælistöðvar (Orkustofnun).

Náttúruvernd: Friðlýst svæði, náttúruminjaskrá og náttúruverndaráætlun (Umhverfisstofnun).

Staðfræðigögn: Þéttbýli, jarðamörk, örnefni, hæðarlínur og vegir (Aðrir).

Tengiliðir og nánari upplýsingar

Orkustofnun: Þorvaldur Bragason, thorvaldur.bragason (hjá) os.is

Fyrirvarar og takmarkanir



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica