Vefsjár

Landgrunnsvefsjá

landgrunnsvefsja_skjamynd

Landgrunnsvefsjá veitir aðgang að upplýsingum um gögn sem tengjast landgrunni Íslands, en fyrst um sinn er þar einkum efni frá Drekasvæðinu er varðar útboð á sérleyfum til rannsókna og vinnslu á hafsbotni. Sýnd eru reitakerfi fyrir útboðssvæði, yfirlit yfir hafsbotnsgögn og margvíslegar upplýsingar um gögn úr leiðöngrum. Vefsjánni er meðal annars ætlað að auðvelda þeim sem vilja fá upplýsingar um útboðssvæði að finna hvaða gögn eru til, af hvaða svæðum, hver aflaði þeirra og hvernig, hvenær gagnaöflunin fór fram og hvar er mögulegt að fá aðgang að gögnunum. Vefsjáin var opnuð í ársbyrjun 2009 og er efni hennar birt bæði á íslensku og ensku.

Nánar


Gagnavefsjá

gagnavefsja_skjamynd Gagnavefsjá birtir upplýsingar um valið efni úr gagnagrunni Orkustofnunar, en Orkustofnun (áður Raforkumálaskrifstofan) hefur safnað gögnum um orkulindir landsins í meira en hálfa öld. Vefsjáin, sem er bæði á íslensku og ensku, var opnuð á netinu í mars árið 2004 og voru aðilar að verkefninu: orkumálasvið Orkustofnunar, Vatnamælingar Orkustofnunar og Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR), en síðar bættust við gögn frá Umhverfisstofnun. Vatnamælingar, sem nú eru hluti Veðurstofu Íslands og Umhverfisstofnun, uppfæra ekki lengur gögn til birtingar í Gagnavefsjá, heldur nýta stofnanirnar nú Náttúrvefsjá í þeim tilgangi. Gagnavefsjá mun víkja á næstu misserum fyrir nýrri Orkuvefsjá.

Nánar


Orkuvefsjá

ovs_skjamynd1Orkuvefsjá er í vinnslu (2010), en vefsjánni er ætlað að koma í stað Gagnavefsjár sem birtingarstaður upplýsinga um staðtengjanleg gögn um Ísland í málaflokkum sem eru á ábyrgð Orkustofnunar. Unnið er að uppfærslu ýmissa gagnasafna stofnunarinnar og vinnslu lýsigagna fyrir þau, en færa þarf upplýsingarnar sem nú birtast í Gagnavefsjá yfir í annað hugbúnaðarumhverfi. Þá er jafnframt verið að byggja upp ný landræn gagnasöfn sem fyrirhugað er að birta í nýrri Orkuvefsjá, en vefhugbúnaður verður sá sami og notaður er í Landgrunnsvefsjá.

Nánar


Náttúruvefsjá

natturuvefsja_skjamyndNáttúruvefsjá er samstarfsverkefni nokkurra stofnana þar sem markmiðið er að veita aðgang að upplýsingum úr landfræðilegum gagnasöfnum um náttúru Íslands. Vefsjáin birtist fyrst á netinu í október 2008 og þar eru margbreytileg gögn frá ólíkum aðilum um eðli íslenskrar náttúru á landi, sjó og vatni aðgengileg innan sömu vefsjárinnar. Undirbúningsverkefni fyrir Náttúruvefsjá var styrkt af Rannís, en kostnaður við vinnslu verkefnisins var greiddur til helminga af verkefnisstjórn um íslenska upplýsingasamfélagið og Orkustofnun, auk framlags hugbúnaðarfyrirtækisins Gagarín sem þróaði hugbúnaðinn. Forræði Náttúruvefsjár fylgdi Vatnamælingum Orkustofnunar yfir til Veðurstofu Íslands í ársbyrjun 2009 og er verkefnið ekki lengur á ábyrgð Orkustofnunar.

Nánar






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica