Kort í skýrslum

Kort í skýrslumOrkustofnun og forverar hennar hafa gefið út skýrslur af ýmsu tagi frá því á fyrrihluta 20. aldar, samtals yfir 3500 titla. Skýrslurnar hafa nær allar þegar verið skannaðar og skráðar í Gegni þar sem efni þeirra allflestra er orðið aðgengilegt á rafrænu formi (pdf). Þá eru til hátt í 4000 greinargerðir OS sem verið er að skanna og skrá í Gegni um þessar mundir.

Margar þessara skýrslna og greinargerða geyma einhvers konar kort. Þau geta verið annaðhvort í sama broti og skýrslurnar, brotin inn í skýrslur eða fylgt skýrslum. Með með því að taka skýrslukortin sérstaklega fyrir og skrá þau, gæti orðið til gagnlegt yfirlit og fengist ítarlegri upplýsingar um þau kort sem birst hafa í eða sem fylgigögn með skýrslum og greinargerðum OS. Veruleg skörun er talin vera á milli teikningasafns OS og korta í skýrslum og greinargerðum og sama á við um hluta jarðkönnunarkorta OS. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort og þá hvenær af skráningu kortanna verður.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica