Gagnasöfn

Orkustofnun hefur aflað margvíslegra gagna um orkurannsóknir og orkunýtingu landsins á löngum tíma. Stór hluti þeirra gagna sem hafa orðið til í starfsemi Orkustofnunar er stafrænn og vistaður í gagnagrunnum og/eða landupplýsingakerfum. Í þeim breytingum sem orðið hafa á stofnuninni á liðnum áratug hefur verið reynt að tryggja að þau gögn sem unnin hafa verið fyrir opinbert fé séu aðgreind og stefnt er að því að upplýsingar um slík gagnasöfn verði opnar öðrum á Netinu.
Orkutölur
Orkustofnun safnar tölulegum gögnum um ýmsa þætti orkumála, svo sem um vinnslu, innflutning, notkun og verð á orku og um vissa þætti í rekstri orkumannvirkja. Auk þess eru varðveittar á stofnuninni ýmsar aðrar upplýsingar tengdar orkubúskap þjóðarinnar. Flestar töflur uppfærast árlega.
Nánar
Gagnagrunnar
Á liðnum árum hafa margs konar gögn verið færð inn í Oracle gagnagrunn á Orkustofnun, auk gagna sem sett hafa verið inn í landupplýsingakerfi. Breytingar á hlutverki og skipulagi stofnunarinnar leiddu síðan til þess að eignarhald gagna deildist í einhverjum tilfellum á fleiri stofnanir, eða að umráðaréttur gagna var með stjórnvaldsákvörðunum færður annað. Þá hafa samstarfsverkefni leitt af sér sameiginlegt eignarhald í einhverjum gagnagrunnum. Leit í borholuskrá
Nánar
Landræn gagnasett
Við gerð á landrænum gagnasettum (e. spatial data sets) á Orkustofnun er byggt á efni úr gagnagrunnum og með vinnslu í landupplýsingakerfum eru gögn tengd staðsetningu. Gagnasettin birtast svo í Landgrunnsvefsjá og Orkuvefsjá eða er miðlað til annarra notenda vegna notkunar í landupplýsingakerfum þeirra. Orkustofnun notar eigin lýsigagnagrunn fyrir allar upplýsingar um landræn gagnasett stofnunarinnar.
Nánar
Korta- og teikningasafn
Korta- og teikningasafn Orkustofnunar samanstendur annars vegar af kortum og teikningum sem orðið hafa til í starfsemi stofnunarinnar og hjá forvera hennar Raforkumálaskrifstofunni og hins vegar af kortum sem aflað hefur verið frá ýmsum aðilum hér á landi og erlendis. Safnið skiptist í fimm meginflokka þar sem teikningasafnið er stærst, en aðrir flokkar eru: orkugrunnkort, jarðkönnunarkort, kort í skýrslum OS og Íslandskort útgefin af öðrum. Leit í kortaflokkum OS. Leit í teikningaskrá
