Fréttir

Orkustofnun veitir Landsvirkjun rannsóknarleyfi vegna áætlana um virkjun í efri hluta vatnasviðs Stóru Laxár í Hrunamannahreppi - 25/7/2012

Landsvirkjun stefnir að því að rannsaka hagkvæmni þess að nýta rennsli Stóru Laxár og fall frá miðlunarlóni í Illaveri að fyrirhugaðri virkjun skammt frá Hrunakrók í Hrunamannahreppi.

Lesa meira

Tvær umsóknir um rannsóknarleyfi vegna virkjana í Skjálfandafljóti - 16/7/2012

Orkustofnun hefur nú til umfjöllunar tvær umsóknir er skarast um rannsóknarleyfi vegna fyrirhugaðra virkjana í Skjálfandafljóti, annars vegar frá Landsvirkjun vegna virkjana í ofanverðu fljótinu og hins vegar frá Hrafnabjargavirkjun hf. vegna virkjunar við Hrafnabjörg. Lesa meira

Úthlutun styrkja úr Orkusjóði - 12/7/2012

Miðvikudaginn 11. júlí afhentu Steingrímur J. Sigfússon, iðnaðarráðherra og Mörður Árnason, formaður orkuráðs, styrki úr Orkusjóði til rannsóknar- og kynningarverkefna fyrir árið 2012.

Lesa meira

Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna og Orkustofnun gefa út bækling um starfsemi jarðhitaskólans - 4/7/2012

Jarðhitaskólinn hefur verið starfræktur frá árinu 1979. Íslenska ríkið og Háskóli Sameinuðu þjóðanna stofnuðu skólann sem hefur verið starfræktur innan Orkustofnunar frá upphafi.

Lesa meira