Forstöðumanni Jarðhitaskólans, Dr. Ingvari Birgi Friðleifssyni, var afhent viðurkenning á jarðhitaráðstefnu í Kína.
Í morgun flutti Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri, hið árlega jólaerindi í Orkugarði. Eins og vanalega er erindið birt hér á vef Orkustofnunar.
Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að hefja undirbúning að opnun hafsvæðisins á Jan Mayen-hrygg fyrir olíuleit. Tillaga að áætlun til mats á áhrifum olíuleitarstarfseminnar hefur nú verið send út til umsagnar af norska olíu- og orkuráðuneytinu. Liðin eru 16 ár frá því að Norðmenn hófu síðast að opna nýtt svæði fyrir olíuleit, og eru þetta því nokkur tíðindi almennt á sviði olíuleitar við Noreg.
Lesa meiraFramkvæmdir á grundvelli leyfisins, auðkenndar sem Mjólká II og III, skulu hefjast innan fjögurra mánaða frá útgáfu leyfis og ljúka fyrir 31. desember 2011.
Lesa meiraMegintilgangur jarðhitaleitar er að stuðla að enn frekari nýtingu jarðvarma til húshitunar í landinu með það að markmiði að bæta búsetuskilyrði og auka aðgengi að þeim gæðum og möguleikum sem nýting jarðhita hefur í för með sér.
Árið 2008 voru 102 borholur í rekstri á íslenskum virkjanasvæðum og nam meðalmassaframlag hverrar holu 0,78 milljón tonn og meðalfrumorkuframlag 1,19 PJ.
Jarðvarmanotkun hefur aukist mikið á síðustu árum með tilkomu nýrra jarðvarmavirkjana, en jafnframt hefur nýtingarhlutfall frumorku til raforkuvinnslu aukist talsvert.
Lesa meiraStýrihópur um heildstæða orkustefnu stendur fyrir málþingi um eignarhald orkufyrirtækja og áhættutöku sem tengist rekstri þeirra.
Lesa meiraÍ teikningasafni Orkustofnunar 1938-1998 eru um 37500 teikningar og hefur skrá yfir safnkostinn hingað til aðeins verið aðgengileg í Oracle gagnagrunni innan stofnunarinnar. Nú hafa nokkrir efnisþættir úr skránni verið birtir á vefsíðu OS og er hægt að leita að upplýsingum eftir nokkrum leiðum.
Lesa meiraIðnaðarráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu um orkunýtni í byggingum í samstarfi við Orkustofnun, Orkusetur, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Neytendastofu og Samtök iðnaðarins.
Lesa meiraÞau svið sem lögð er áhersla á, eru endurnýjanlegir orkugjafar, markaður og dreifikerfi og vistvænar samgöngur. Í umsókninni þarf að leggja áherslu á a.m.k. tvö eða þrjú ofangreind svið.
Lesa meiraNorrænu orkumálaráðherrarnir hafa í dag formlega blásið til samkeppni um titilinn ,,Norrænt orkusveitarfélag”. Samkeppninni er ætlað að vekja athygli á og styðja við aðgerðir norrænna sveitarfélaga sem stuðla að sjálfbærum lausnum í orku- og lofts-lagsmálum.
Lesa meiraÍsland og Bandaríkin skrifuðu í dag undir samning sem miðar að aukinni þekkingu á jarðhitatækni um heim allan og frekari nýtingu hennar. Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, Luis E. Arrega, og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra skrifuðu undir samninginn í Þjóðmenningarhúsinu.
Lesa meiraFimmtudaginn 7. október, kl. 15:00 ætla þeir Mikael Rüdlinger og Karl-Magnus Mattsson frá BNL Clean Energy að vera með kynningu í Orkugarði á lausnum er snúa að útblásturslausri orkutækni.
Lesa meiraVikuna 4-8 október verður margt um manninn í Orkugarði, en hingað til lands eru komnir yfir 100 sérfræðingar tengdir jarðhita úr fjórum heimsálfum vegna funda um jarðhitamál sem hér verða haldnir undir sameinginlega heitinu "Geothermal Week in Reykjavík".
Nú hafa verið birtar niðurstöður fýsileikakönnunar á DME framleiðslu á Íslandi, en könnunin var samstarfsverkefni Mitsubishi Heavy Industries, Heklu ehf., Iðnaðarráðuneytis, ELKEM, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Mannvits og Orkustofnunar.
Lesa meiraSamstarfsverkefni Orkuseturs og Vistvænnar Orku efh. um tilraunaræktun með ljósdíóðu-lömpum bendir til að spara megi um og yfir 50% í raforkunotun til gróðurhúsalýsingar.
Lesa meiraOrkustofnun hefur gefið út skýrsluna “Efnahagslegur samanburður húshitunar með jarðhita og olíu árin 1970-2009”.
Lesa meiraNýverið lauk vel heppnuðum leiðangri á Drekasvæðið, en hann stóð yfir 17. ágúst til 15. september. Leiðangurinn var samstarfsverkefni Orkustofnunar, Olíustofnunar Noregs og Hafrannsóknastofnunarinnar.
Lesa meiraStýrihópur um heildstæða orkustefnu stendur fyrir málþingi afgjöld af orkuauðlindum í eigu ríkisins.
Lesa meiraS.l. fimmtudag fór orkumálastjóri, ásamt starfsmönnum Akureyrarskrifstofu Orkustofnunar, tveimur fulltrúum RARIK og Akureyrarbæjar og fulltrúa iðnaðarráðuneytisins, til fundar við íbúa í Grímsey um orkumál í eyjunni.
Lesa meiraPlatina Resources Ltd. hefur með erindi þann 9. september 2010 dregið umsókn sína um leyfi til leitar og rannsókna á gulli og öðrum málmum á Austurlandi til baka.
Lesa meiraLeitað er eftir úrvals verkefnum er tengjast rafvæðingu í samgöngum. Lagt er af stað með 12 miljónir norskra króna, sem úthlutað verður til valinna verkefna.
Lesa meiraAf gefnu tilefni, vegna umræðna um fyrirhugaða gjaldskrárhækkun Orkuveitu Reykjavíkur, vill Orkstofnun koma eftirfarandi á framfæri.
Lesa meiraIðnaðarráðuneytið í samvinnu við Orkustofnun/Orkusetur hefur ákveðið að styrkja húseigendur sem ráðast vilja í endurbætur á einangrun húsnæðis í þeim tilgangi að draga úr orkunotkun og þar með kostnaði við upphitun þess.
Lesa meiraNorrænar Orkurannsóknir (Nordisk Energiforskning) sem er stofnun Norrænu ráðherranefndarinnar varðandi orkurannsóknir og -þróun, auglýsir lausa stöðu upplýsingafulltrúa stofnunarinnar til umsóknar.
Lesa meiraÞann 8. júlí, 2010, veitti Orkustofnun leyfi til rannsókna á vatnasviðum Skaftár og Tungufljóts til handa Suðurorku ehf.
Lesa meiraKatrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögur Orkuráðs um styrki úr Orkusjóði til rannsóknar- og kynningarverkefna fyrir árið 2010. Styrkirnir eru veittir verkefnum sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun.
Lesa meiraÁrsritið Orkumál raforka kemur ekki út á prenti í ár og er því eingöngu sent út rafrænt á áskrifendur. Einnig er hægt að nálgast blaðið á vef Orkustofnunar.
Lesa meiraHrunamannahreppur, Íslensk matorka ehf. og Matís ohf. Hafa undirritað viljayfirlýsingu vegna uppbyggingar á orkufrekum matvælaiðnaði á Flúðum sem m.a. felur í sér hlývatnseldi á hvítum matfiski. Uppbyggingin verður unnin í samstarfi við Orkustofnun þar sem stofnunin verður leiðbeinandi og ráðgefandi.
Ársfundur Orkustofnunar verður haldinn 26. mars, kl.8:30-11:00 í Orkugarði, Grensásvegi 9.
Lesa meiraIðnaðarráðherra hefur ákveðið að 2. útboð sérleyfa til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu muni fara fram árið 2011 á tímabilinu 1. ágúst til 1. desember.
Orkustofnun veitti Íslenska kalkþörungafélaginu ehf. leyfi til leitar og rannsókna á kalkþörungaseti á hafsbotni í Dýrafirði, Tálknafirði og Patreksfirði þann 8. febrúar 2010.
Lesa meiraOrkustofnun býður til fyrirlestrar. Haukur Jóhannesson mun halda fyrirlestur í Orkugarði 24. febrúar kl. 13:00, sem ber heitið: Dreifing jarðhitans og tengsl hans við berggrunninn í ljósi nýrrar túlkunnar á jarðfræði Íslands.
Lesa meiraHelena Sigurðardóttir heldur fyrirlestur föstudaginn 12. febrúar kl. 13:00. í Orkugarði.
Orkustofnun veitti Sjávarorku ehf. rannsóknarleyfi vegna sjávarfallavirkjunar í Hvammsfirði í Breiðafirði þann 15. janúar 2010. Rannsóknarleyfið er veitt til 6 ára og gildir til 31. desember 2016.
Orkustofnun óskar eftir að ráða jarðhitafræðing við Jarðhitaskóla Háksóla Sameinuðu þjóðanna.
Lesa meiraOrkusjóður auglýsir rannsóknarstyrki fyrir árið 2010. Umsóknarfrestur er til 1. mars.
Lesa meira13. og 14. janúar sl. stóð færeyska fyrirtækið Simprentis fyrir landsmóti framhaldskólanema í olíuleitarherminum OilSim. 43 nemendur frá Framhaldsskólanum í Austurskaftafellssýslu og Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum tóku þátt og var Orkustofnun styrktaraðili mótsins.
Lesa meiraRannís og Nýsköpunarmiðstöð Íslands standa fyrir opnum kynningarfundi um Öndvegisrannsóknaráætlun Norðurlanda(Toppforskningsinitiativet) á sviði loftlags-, orku- og umhverfismála. Áætlunin er stærsta samnorræna átakið á þessu sviði nokkru sinni og eru umsóknarfrestir í febrúar og mars.
Lesa meira