Við virðulega athöfn við háskólann í Debrecen í Ungverjalandi þann 29. november var Guðni A. Jóhannesson útnefndur heiðursdoktor.
Lesa meiraÍ samræmi við ákvarðanir ríkisstjórnarinnar vinna iðnaðarráðuneytið og Orkustofnun nú að undirbúningi fyrsta útboðs á sérleyfum til rannsóknar og vinnslu kolvetnis á Drekasvæði með góðri aðstoð og stuðningi ýmissa aðila. Útboðstímabilið hefst um miðjan janúar 2009 og lýkur 15. maí 2009.
Samnorræn námsstefna verður haldin í Orkugarði dagana 3-4 desember n.k. um orkunýtni í samgöngum og fiskveiðum á Norrænum dreifbýlissvæðum.
Í septembermánuði kom út hjá U.S. Geological Survey í Bandaríkjum Norður-Ameríku í samstarfi við Vatnamælingar Orkustofnunar bókin Geographic Names of Iceland's Glaciers: Historic and Modern eftir Odd Sigurðsson og Richard S. Williams, Jr.
Lesa meiraÍsland var áberandi á nýafstaðinni ráðstefnu World Renewable Energy Congress í Glasgow sem sótt var af 700 gestum frá um hundrað löndum.
Lesa meiraÁtján daga kortlagningar leiðangri um Drekasvæðið, með því markmiði að afla almennra upplýsinga vegna leitar á ólíu og gasi, hefur nú verið lokið.
Lesa meiraOrkustofnun hefur í dag veitt norska olíuleitarfyrirtækinu Wavefield-InSeis leyfi til leitar að kolvetni á norðanverðu Drekasvæðinu.
Lesa meiraJarðhitahluti Orkumála er kominn út. Í ritinu má lesa um m.a.helstu lykiltölur jarðhitamála á árinu 2006, aukna frumorkunotkun, jarðvarmavinnslu, framleiðslu raforku úr jarðvarma, nýjar hitaveitur, verð á heitu vatni, jarðhitaleit á köldum svæðum, dreifingu jarðhita í Hrunamannahreppi og loks er grein um viðhorf til nýtingar á jarðvarmanum.
Lesa meiraAð þessu sinni er ritið að miklu leyti helgað breytingum af ýmsu tagi sem urðu á árinu. Þróun eldsneytismála hefur verið ör, bæði hér á landi og á alþjóðavettvangi. Í ritinu er gerð grein fyrir endurskoðun Orkustofnunar á gagnasöfnun og eldsneytisspám. Þá er einnig grein um eyðslueinkunn bifreiða.
Lesa meiraÖssur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hefur ráðið prófessor Guðna A. Jóhannesson PhD, sem nú gegnir stöðu forstöðumanns byggingartæknideildar Konunglega verkfræðiháskólans í Stokkhólmi, orkumálastjóra frá 1. janúar 2008 til næstu fimm ára.
Lesa meira