Fréttir

Vistvænt eldsneyti - 31/10/2005

Alkunna er að með notkun jarðefnaeldsneytis, þ.e. olíu og olíuafurða, er gengið á óendurnýjanlegar orkulindir heimsins. Því hefur í síauknum mæli verið leitað ráða til að draga úr notkun þessarar auðlindar svo og hvað hægt sé að nota í staðinn fyrir hana.

Lesa meira

Útskrift frá Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna - 31/10/2005

Tuttugasti og sjöundi árgangur Jarðhitaskólans útskrifaðist föstudaginn 28. október. Nemendur sem útskrifuðust að þessu sinni eru tuttugu og koma frá Djibouti (1), Egyptalandi (1), El Salvador (2), Eþíópíu (1), Erítreu (1), Indónesíu (2), Íran (2), Kenýa (2), Kína (4), Rússlandi (3), og Úganda (1). Lesa meira

Málþing til minningar um Dr. Guðmund Pálmason - 27/10/2005

Guðmundur fæddist 11. júní 1928 og lést 11. mars 2004. Guðmundur nam eðlisfræði í Svíþjóð og Bandaríkjunum, en ævistarf hans sem forstöðumanns Jarðhitadeidar Orkustofnunar sneri að jarðeðlisfræði og nýtingu jarðhita. Málþingið verður haldið á Orkustofnun, Grensásvegi 9, miðvikudaginn 2. nóvember og hefst kl. 13:00. Lesa meira

Styrkir í IEE sjóð Evrópusambandsins - 21/10/2005

Búið er að auglýsa eftir umsóknum um styrki í Intelligent Energy for Europe (IEE) sjóð Evrópusambandsins.  Styrkir eru veittir til orkusparnaðar (t.d. í byggingum) og endurnýjanlegra orkugjafa. Lesa meira

Ráðstefna um umhverfiskostnað 27. október 2005 - 18/10/2005

Umhverfiskostnaður er hugtak sem rutt hefur sér til rúms á undanförnum árum. Hugtakið vísar til þess að nauðsynlegt sé að verðleggja umhverfið áður en farið er í ýmiskonar framkvæmdir og framleiðslu og að umhverfiskostnaður sé mikilvæg breyta þegar spáð er fyrir um hagnað framkvæmda. Lesa meira

Verkefnastyrkir á sviði sjálfbærra orkukerfa - 11/10/2005

Morgunverðarfundur
Fimmtudaginn 13. október 2005, kl. 08:30-12:00
Hótel Loftleiðir við Hlíðarfót
Lesa meira