Bókasafn Orkustofnunar
UM safnið
Bókasafn Orkustofnunar er sérfræðisafn í orkumálum, auðlindanýtingu og jarðvísindum.
Stóran hluta efnisins er ekki að finna annars staðar og er því mikilvægur hluti af heildarsafnkosti landsins.
Safnkosturinn er yfir 20.000 titlar og er skráður í Gegni – http://www.gegnir.is/ , landskerfi bókasafna.
Skýrslur Orkustofnunar og forvera hennar eru skráðar í Gegni og flestar aðgengilegar þar á rafrænu formi.
Meðal annars efnis eru bækur, skýrslur ÍSOR og útgáfur Jarðhitaskólans. Þá má nefna ráðstefnurit, doktorsritgerðir og skýrslur frá öðrum útgefendum.
Eldra efni má finna hér í eldri leitarvél safnsins - t.d. greinargerðir Orkustofnunar sem enn eru ekki komnar í Gegni
Bókasafn Orkustofnunar hefur frá upphafi greitt sinn hlut í landsaðgangi að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum á http://www.hvar.is/ . Fjölmörg vísindatímarit á fagsviði stofnunarinnar eru í þessum landsaðgangi.
Safnið þjónar fyrst og fremst starfsfólki og nemendum Orkustofnunar, Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna og Íslenskra orkurannsókna. Safnið býður notendum aðgengi að ritum og upplýsingaþjónustu í tengslum við rannsóknir, nám og kennslu.
Safnið er einnig opið almenningi, þótt safnefni sé fyrst og fremst til afnota á staðnum. Þá er hægt að senda fyrirspurnir til safnsins.
Safnið er opið frá kl. 9 – 16 alla virka daga.
Póstfang safnins er: bokasafn@os.is
Forstöðumaður Bókasafns :
Rósa S. Jónsdóttir – rosa.s.jonsdottir@os.is
