Svæði og gögn
Á landgrunni Íslands eru tvö svæði þar sem talið er mögulegt að finna jarðolíu eða jarðgas í nýtanlegu magni. Þetta eru Drekasvæðið austur og norðaustur af landinu og Gammsvæðið úti fyrir Norðurlandi.
Drekasvæðið nær m.a. yfir suðurenda Jan Mayen hryggjarins sem er meginlandsfleki. Háskólastofnanir hafa staðið að töluverðum rannsóknum á Jan Mayen hryggnum, en einnig hafa íslensk og norsk stjórnvöld staðið að sameiginlegum mælingum á svæðinu ásamt því að einkaaðilar hafa staðið að rannsóknum á svæðinu. Fyrirliggjandi gögn benda til þess að um sé að ræða þykkt lag af meginlandsbergi á svæðinu, og að í jarðlagastaflanum sé mögulega að finna móðurberg frá af Júra- og/eða Krítartímabilunum. Lengi hefur verið vitað um olíumöguleika á Drekasvæðinu, m.a. vegna jarðfræðilegs skyldleika svæðisins við setlagatrog á Austur-Grænlandi, landgrunn Vestur-Noregs og landgrunn Færeyja og Hjaltlands. Vitað er að olía hefur myndast á Austur-Grænlandi og á hinum svæðunum hefur hún þegar fundist í vinnanlegu magni.
Umhverfismat áætlunar hefur verið unnið fyrir norðanvert Drekasvæðið þannig að heimilt er að veita sérleyfi til rannsóknar og vinnslu á því svæði.
