Fréttir og viðburðir
Fjörugar umræður um áhrif olíuleitar á íslenskt atvinnulíf
Fyrirlestur um stöðu olíuleitar á Drekasvæðinu var haldinn á vegum Dokkunnar í Orkugarði í gær. Meðal
þess sem fjallað var um á fundinum var yfirlit rannsókna, útboð
sérleyfa til rannsókna og nýlegar rannsóknir sem styrkja kenningar um
líkur á því að olíu eða gas sé að finna á svæðinu. Fjörugar umræður um áhrif á íslenskt atvinnulíf og umhverfi fóru fram á fundinum.Mikill áhugi var á meðal gesta og meðal þess sem menn veltu fyrir sér voru áhrif olíuleitar á Drekasvæðinu fyrir íslenskt atvinnulíf. Umræður og fyrirspurnir um hugsanlega þjónustumiðstöð frá Íslandi bæði vegna útboðs íslendinga á Drekasvæðinu og umsvifa hér á landi vegna útboðs í Austur Grænlandi. Þjónustumiðstöð í kringum olíuleit gæti orðið mikil lyftistöng fyrir íslenskt atvinnulíf.
Glærur fundarins má nálgast hér
