Óheimilt er að spilla jarðhitasvæði eða grunnvatni

Ekki má breyta farvegi þess vatns er frá jarðhitasvæði rennur, nema talið sé nauðsynlegt til varnar landi eða landsnytjum eða til þeirrar hagnýtingar jarðhita sem heimil er að lögum. Mannvirki öll til hagnýtingar á auðlindum skulu þannig úr garði gerð að af þeim stafi hvorki hætta né veruleg óþægindi fyrir umferð eða spjöll á eign annars manns, nema honum sé skylt að hlíta því samkvæmt lögum eða samningum. Þegar notkun borhola er hætt skal Orkuveita Reykjavíkur loka þeim tryggilega og merkja. Fullnaðarfrágangur á niðurlögðum borholum verði fólginn í að steypa í þær í samræmi við leiðbeiningar á hverjum tíma um frágang borholna af hálfu Orkustofnunar.

Orkuveita Reykjavíkur skal taka tillit til umhverfissjónarmiða við framkvæmdir sem og við frágang að þeim loknum og fjarlægja á sinn kostnað öll mannvirki og skilja við svæðið, svo sem nokkur kostur er, í sama ásigkomulagi og fyrir framkvæmdir. Frágangur skal vera með þeim hætti að hann fyrirbyggi ekki framtíðarnotkun jarðhita á svæðinu.

Senda grein

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica