Jarðhitanotkun

frumorkunotkun til 2008

Það má með sanni segja að meðal merkustu tækniframfara Íslendinga á liðinni öld séu þau vaxandi tök sem náðust á nýtingu jarðhita sem leynst hefur djúpt í jarðlögum undir landinu án þess að menn grunaði hvílíkur auður væri þar fólginn.

Íslendingar eru nú meðal fremstu þjóða í nýtingu jarðhitans. Frumorkunotkun jarðhita á Íslandi árið 2008 nam 62% af frumorkunotkun landsmanna.

Með frumorkunotkun er átt við jardhitanotkun 2008varmainnihald vökvans yfir 15 gráður. Það ræðs hins vegar af nýtingarferlum hve mikill hluti frumorkunotkunar skilar sér til ætlaðra nota og nefnist sá hluti notorka. Notorkan nemur misháu hlutfalli af frumorkunni eftir því um hvers konar nýtingu er að ræða.

Langmestur hluti af nýtingu jarðhitans hér á landi fer til húshitunnar. Árið 2008 nam bein notkun jarðhita á landinu 25,1 PJ, en heildarnotkun að meðtalinni raforkuvinnslu nam 39,6 PJ.



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica